SEX.Y hress á kantinum
Stokkseyri
Hinir 6.bekkirnir
13.2.2008 05:14:37 / Gunni H

Hnakkahorn Biggs, kjéllinn á kéntinum!


Hér má búast við því allra heitasta í hnakkabransanum í dag. Biggi mun leiðbeina ungum drengjum sem er ekki alveg vissir um  hvernig þeir eigi að hegða sér og gera þá að HNÖKKUM. Biggi lumar alltaf á góðum ráðum, eins og t.d. hvert er best að fara í aflitun, hvar sé best að versla gula bíla og svo auðvitað hvernig tala skal rétt hnakka-mál.

Ég hef orðið þess heiðurs aðnjótandi að fá mitt eigið horn til að tjá mig, og jú að sjálfsögðu hnakkahorn enda kom ekkert annað til greina. Hérna munu ég fá tækifæri til að miðla minni miklu reynslu til ungra og óreyndra jafnt sem gamla og gamalreyndra hnakka þessa lands.

Svokölluð spútniktíska hefur rutt sér til rúms í okkar fámenna samfélagi. Æ algengara er að sjá ungar dömur og herra klædd sem útigangsfólk og viðvaninga. Svokallaðar flippaðar búðir spretta upp í hverju skúmaskoti og því meira sem þú líkist róna, því flottari ertu. Þetta sama fólk stofnar skemmtistaði um allar trissur sem heita nöfnum eins og Sirkus eða kúltúra. Réttast væri að senda allt þetta fólk í einn stóran sirkus! Við þetta verður ekki búið lengur og grípa þarf til aðgerða, ekki seinna en strax!

Söfnumst því saman á Hverfis og látum gott af okkur leiða. Það verður best gert með því að snúa þessu fólki frá villu síns vegar og leiða þau í allan sannleik um hverjir eru bestir.

Með baráttukveðju, The Master of the Hnakks

Næsti pistill mun snúa að jólgjafainnkaupum fyrir hnakka. Stay tuned...