jájájá, hver veit nema að við höfum fundið enn eina hæfileikaríka manneskju í 5.Z . Það reynist vera hún Jónína Fel sem er þessi afbragðs kokkur. Ekki halda að "Fel" í nafni hennar sé eitthvað djók... því hún er nefnilega hálfsystir Jóa Fel! Hver hefði trúað því!?! Fyrir utan það nátturulega hvað Jónína er ófeimin við að sýna upphandleggsvöðvana. En hvað um það. Jónína ætlar nefnilega að vera með daglega pistla hér á síðunni og gefa fólki góðar hugmyndir hvað elda skuli sér í kvöldmatinn. Allt frá hafragraut upp í fimm rétta máltíðir með fyrsta flokks hráefni. Úr Hagkaupum auðvitað. Ekki gleyma því!
Jæja, nú hef ég loksins náð að ryðja mér leið í gegum þetta flókna kerfi.
Jómfrúarfærslan mín í matreiðsluhorninu mínu mun innihalda tillögur um árshátíðarmat. Þið munuð sko fá vatn í munninn bara við að lesa uppskriftirnar.
Þar sem ég geri mér fulla grein fyrir því að ekki hafa allir sama smekk eru hér nokkrir flokkar, villibráð, fiskur og pasta.
Heilsteiktur hreindýrahryggur með yrjusósu og döðlum
Fyrir 6
1 stk. meðalstór hreindýrahryggur, u.þ.b. 3 kg
300 g feit svínasíða
2 msk. þurrkaðar kryddjurtir, timian og rósmarín
salt og pipar
Soð
Setjið 1-1/2 lítra af vatni í ofnskúffuna.
Saxið grænmetið og setjið í vatnið:
1 stk. laukur
1/4 stk. blaðlaukur
1 stk. sellerístöngull
1 stk. gulrót
5 stk. einiber
3 stk. negulnaglar
10 stk. piparkorn
Yrju- og döðlusósa
1 l af soði úr skúffunni
50 g hveiti
50 g smjörlíki
2 stk. Dalayrjur skornar í bita
2 msk. rifsberjahlaup
150 g nýjar döðlur (skornar í tvennt og steinhreinsaðar)
kjötkraftur
sósulitur
Sykurbrúnaðar kartöflur
1 kg kartöflur, soðnar
50 g smjör
100 g sykur
ögn af vatni
Eplasalat
2 stk. epli
1 stk. sellerístilkur
100 g sýrður rjómi
ögn sykur, salt og pipar
Meðlætið
150 g sykurbaunir
3 stk. gulrætur
Villikrydduð gæsabringa með bláberjasósu
Fyrir 6
6 gæsabringur
2 msk. timian (blóðberg), ferskt eða þurrkað
salt og pipar
Villibráðarsoð
2 l vatn
beinin af gæsunum og lærin
1 stk. sellerístilkur
1 stk. laukur
1 stk. gulrót
2 stk. lárviðarlauf
1 búnt steinselja
1/2 stk. blaðlaukur
6 stk. einiber
2 stk. negulnaglar
10 stk. piparkorn
Bláberjasósa
1/2 l soð
2 dl rjómi
1 dl bláberjasulta
100 g fersk bláber
smjörbolla (30 g smjörlíki, 30 g hveiti)
Pastarör með hörpuskel á teini
Fyrir 4
600 g hörpuskel
8 stk. grillpinnar, stuttir
3 msk. ólífuolía til steikingar
2-3 msk. hveiti
salt og svartur pipar úr kvörn
350 g pastarör (cannelloni)
3 l vatn, léttsaltað
1-2 msk. ólífuolía (út í vatnið)
Meðlæti
3 stk. hvítlauskrif, stór (eða risahvítlauksrif)
1 stk. rauðlaukur
4 msk. fururhnetur, létt brúnaðar
8 msk. hjartahnetur (cashewhnetur), létt brúnaðar á þurri, heitri pönnu
1/2 haus jöklasalat
250 g radísur
2 msk. ólífuolía til steikingar
Balsamedikssósa
2 dl balsamedik
2 dl matarolía
1 stk. stórt hvítlauksrif (eða risahvítlauksrif), saxað
1 dl kjúklingasoð (vatn og teningur/kraftur)
salt og svartur pipar úr kvörn
Gufusoðin smálúða með pestó og furuhnetusósu
Fyrir 4
800 g smálúða í flökum
2 dl vatn
1 tsk. salt
safi úr 1/2 sítrónu
Basil- og furuhnetusósa
8 msk. furuhnetur
1 msk. matarolía
4 msk. basil, saxað
1-1/2 dl kjúklingasoð (vatn og teningur eða kraftur)
4 msk. pestó, grænt
4 dl rjómi
300-350 g aspas, grænn
Persónulega myndi ég velja villikrydduðu gæsabringurnar en þið getið kosið á skoðanakönnuninni